miðvikudagur, 21. september 2022

Er ritskoðun á Íslandi í rauntíma?

Og hver er veruleikinn með málfrelsi í því sama landi? Er trúfrelsi á Íslandi? Eru prestar á Íslandi og hverjir eru þeir? Hvar eru prestarnir sem messuðu í öllum kirkjum landsins þegar ég var barn og fór í barnamessu á hverjum sunnudegi og fékk þar mína góðu barnatrú sem ég hef ennþá.Er eitthvað sem er ekki lengur í landinu sem gerði landið að því sem það var? Hver er veruleikinn í dag? Í raun er veruleikinn alveg eins og hann hefur verið síðustu 500000 árin með loftslag sem tekur sínum breitingum eins og eðli náttúrinnar er og verður með sínum sveiflum í hita og kulda hingað og þangað um jörðina. Svona er þetta í dag og verður svona á morgum sama hvað sumir meina! Eins og vígslubiskupinn í Skálholti sagði þegar ég var fermdur "það er að "halda" sem er okkar raunveruleiki. Mælir sá með barnatrúna sína í rauntíma.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli