mánudagur, 29. desember 2008

YouTube - "Ahmed the dead terrorist"

YouTube - "Ahmed the dead terrorist"

YouTube - Die Terrorists Die

YouTube - Die Terrorists Die

Mogginn bilaður

hræðilegt ástand hefur skapast!! moggabloggið hrunið! bráðamóttökur sjúkraúsa fyllast að skjálfandi moggabloggurum með krampa,ælupest,kláða og allt sem sem hugsast getur drabbar þessa auminga þegar ekki er hægt að moggablogga. Wolfang er allsendis rólegur. Hann bloggar á GBlogginu!! Hann er í sæluvímu yfir ástandinu, en vill að þetta komist nú fljótlega í lag, svona með vorinu, hehehe.

Eyjólfur Jónsson (áður Eyjólfur Jónsson)

miðvikudagur, 24. desember 2008

Jólakvöld

Ó já. Jólakvöld meðal vina og ættingja er alveg rosalega róandi og hvetjandi samtímis og fyllir sálina af ég veit veit ekki hverju, en gott er það og maður verður svona einhvern veginn allt öðruvísi í framkomu og manni finnst allt vera svo gott og fallagt. Þegar við erum búin að borða þennan góða jólamat og hugsað til svöngu barnanna í Afríku og sá yngsti búinn að hlaupa frá borðinu 100 sinnum til að sjá hvort jólapakkarnir séu ekki á sínum stað og mamma hanns búin að skamma hann 100 sinnum og mynna hann á að jólapakkarnir verða ekki opnaðir fyrr en hann sé búinn að klára af diskinum, sem hann aldrei gerir, þá er dúkað af borðinu og við setjumst södd og dæst í sóffann og sá minnsti fær það embætti að deila út jólapökkunum. Hann finnur pakkana sína fyrst og rífur þá upp á nokkrum mínútum án þess að sinna okkur eða hvað þá að rétta okkur einn pakka eða svo. Hann startar öllu sem gengur fyrir rafmagni og við sitjum allt í einu í vélbyssuskothríð, sírenuvæli, urrandi og geltandi vélhundum, singandi og skjótandi róbótum í 4 stærðum og ekkert er lengur róandi eða hvetjandi og ég ákveð að senda allar jólagjafir til Afríku næstu jól og hellst krakkana líka. Svo er öllum jólapappír troðið í svarta poka og þeim troðið í ruslatunnuna hjá gamla fólkinu í næsta húsi og síðan kveðjast allir og fara heim að sofa.
Glaðileg jól

Eyjólfur Jónsson

YouTube - 10x10

YouTube - 10x10

Ekki bessnar það eins og Hafnfirðingurinn sagði:8. gr. Í 8. gr. segir að talsmaður neytenda geti, óháð þagnarskyldu, krafið stjórnvöld, fyrirtæki og samtök um allar upplýsingar sem hann telur nauðsynlegar til að hann geti sinnt hlutverki sínu. Ekkert kemur hins vegar fram um mögulegar afleiðingar þess ef talsmanni neytenda er neitað um upplýsingar. Í lögum um umboðsmann barna er að finna sambærilegt ákvæði um rétt umboðsmann barna til aðgangs að upplýsingum. Þar er jafnframt mælt fyrir um að komi upp ágreiningur vegna aðgengis að upplýsingum geti umboðsmaður barna leitað úrlausnar dómstóla. Neytendasamtökin leggja til að sambærilegt ákvæði verði tekið upp í frumvarpsdrög um Neytendastofu og talsmann neytenda í nýrri málsgrein, 2. mgr. 8. gr., svohljóðandi:

Komi upp ágreiningur vegna ákvæðis 1. mgr. er umboðsmanni neytenda heimilt að leita úrlausnar dómstóla. Um málsmeðferð fer eftir lögum um meðferð einkamála. Og svona heldur það áfram. Ekkert sem bannar mér að blogga eða eignast börn eða fara á þing, nei ekki þing! en hvað um það, ég blogga áfram.

Eyjólfur

þriðjudagur, 23. desember 2008

Berta má ef.....

Hvað sagði ég? Núna er enginn sem skammast í Wolfang eða mér (Eyjólfi) En lesið þetta:

Viðskiptaráðherra skipar umboðsmann neytenda til fimm ára í senn. Skal hann hafa lokið háskólaprófi í lögfræði og málflutningsréttindi auk þekkingar og reynslu af málefnum neytenda.

2. mgr. 5. gr. Til að tryggja enn frekar sjálfstæði og hlutleysi talsmanns [umboðsmanns] neytenda telja Neytendasamtökin rétt að honum sé óheimilt að hafa með höndum önnur launuð störf, hvort sem er hjá opinberum aðilum eða einkaaðilum. Sambærilegt ákvæði er að finna í lögum nr. 83/1994 um umboðsmann barna. Neytendasamtökin leggja því til að 2. mgr. 5. gr. verði svohljóðandi:

Kjaranefnd ákveður laun og starfskjör umboðsmanns neytenda. Umboðsmanni neytenda er óheimilt að hafa með höndum önnur launuð störf eða takast á hendur verkefni sem eigi samrýmast starfi hans.

Þetta bannar hvorki hitt né þetta! Eða gerir það það?

Eyjólfur
Þessir stafir sjást betur enn þeir bláu! Asnalegasta sem ég hef gert í marga daga, en nú fer þetta í réttar horfur svona smám saman vona ég.

Eyjólfur

Hressari?

Eyjólfur er hressari núna eftir að hann flussaði inn á Blogger með frúnna í eftirdragi. Það er svo semhægt að blogga í mbl.is og önnur ágætis blogg. En semsagt þetta lítur vel út og Guð blessi Forsetann og alla á Bessastöðum.

Eyjólfur og Wolfang