Nú ef malbik dugar ekki til að bera einn mann þá má varla búast við að götur haldi bílum.
Sem er ekkert nýtt eins og allir vita og bannað er að nota steipu til vegagerðar þar sem hún endist allt of lengi til að hægt sé að "græða" á henni. Verður helst að leggja nýtt slitlag á eins árs fresti eða olíumöl mánaðerlega svo vel fari. Það voru steiptir nokkrir vegaspottar hér áður, en malbikað yfir þá í snatri þegar menn sáu að steipan var eins og ný eftir nokkur ár. Hingað þarf ég ekki að koma næstu 50 árin sagði vegagerðar maðurinn sem ég sá steipa nýjan veg í USA og get bætt 40 árum við!!
Væri ekki ráð að steypa alla vegi í Grindavík og járnbinda þar sem sprungur eru hvað breiðastar svona til öryggis?? Kann að vera mæla nú Strákarnir og taka fram stóra brosið.
TRXER
Engin ummæli:
Skrifa ummæli