Jú hvað gerðist þegar Wolfang fékk flensuna? Jú mbl-bloggið datt í núll! Verður Wolfang nú að herða sig í að hressast og komast í sitt fyrra horf með þetta vinsæla blogg. En þó verður Wolfang að huga um heilsunni og blogga varlega og þá kannski bara með einum(1) putta eins og lögregluvarðstjóri í enskri sjónvarpsþáttaröð. Mun gæði bloggsins falla um nokkur strik eins og heimsóknartölur mbl bera gott vitni um og afdankaðir pólitíkusar og ungir fjármálasnillingar geta loksins farið að sofa á kvöldin í þeirri vissu að mbl blogg Wolfangs verði ekki það fyrsta sem þeir sjá þegar þeir oppna mbl.is í morgunsárinu með allt sitt "þetta veit Wolfang". Mætti halda að púkarnir taki Wolfang fyrir að vera nokkurskonar "alliríslendingar" vel falinn á bak við þetta Wolfangs-nafn? Wolfang er nú ekki viss á þessum punkti þar sem efnið dettur bara svona inn með öðrum pósti á hverjum einasta degi nema sunndaga, þá er Wolfang meðal fólks og hefur ekki þennan eina putta með sér til að ota framan í eða upp í nefið á fólki.
Þetta veit Wolfang
miðvikudagur, 7. október 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli