laugardagur, 10. október 2009

Nýtt embætti!

Nýtt embætti hefur verið stofnað. Og er það svosem ekkert nýtt í þessu ebættismannalandi. En það sem slær Wolfang er að þetta er Umboðsmaður lántakenda og embættið er ekki embætti í þeim skilningi að embættið sé stofnun fyrir almenning heldur heldur sérstaklega skylgreint sem Embætti fyrir Rukkunarmenn í Credítinfó og ekki í opinbera geiranum sem Wolfang hefði nú haldið að hýtsti alla embættismenn í landinu. Er hann kominn svo langt þessi skylnaðarmúr sem er á milli þjóðflokkanna tveggja á Íslandi að eftilits og rukkunarfélög útí bæ geti stofnað "Embætti umboðsmanns lántakenda"? Er það ekki í verkahring þess opinbera að vera umboðsmenn almennings í landinu. Ég get ekki séð fyrir mér Jón Ásgeir,Björgólf Thors,Bjarna Benediktsson eða Sigmund Davíðs panta tíma hjá þessum svo mjög sérstaka Umboðsmanni til að hvarta undan ágengni handrukkara frá Credítinfó.

Wolfang

Engin ummæli:

Skrifa ummæli