Ekki bessnar það eins og Hafnfirðingurinn sagði:8. gr. Í 8. gr. segir að talsmaður neytenda geti, óháð þagnarskyldu, krafið stjórnvöld, fyrirtæki og samtök um allar upplýsingar sem hann telur nauðsynlegar til að hann geti sinnt hlutverki sínu. Ekkert kemur hins vegar fram um mögulegar afleiðingar þess ef talsmanni neytenda er neitað um upplýsingar. Í lögum um umboðsmann barna er að finna sambærilegt ákvæði um rétt umboðsmann barna til aðgangs að upplýsingum. Þar er jafnframt mælt fyrir um að komi upp ágreiningur vegna aðgengis að upplýsingum geti umboðsmaður barna leitað úrlausnar dómstóla. Neytendasamtökin leggja til að sambærilegt ákvæði verði tekið upp í frumvarpsdrög um Neytendastofu og talsmann neytenda í nýrri málsgrein, 2. mgr. 8. gr., svohljóðandi:
Komi upp ágreiningur vegna ákvæðis 1. mgr. er umboðsmanni neytenda heimilt að leita úrlausnar dómstóla. Um málsmeðferð fer eftir lögum um meðferð einkamála. Og svona heldur það áfram. Ekkert sem bannar mér að blogga eða eignast börn eða fara á þing, nei ekki þing! en hvað um það, ég blogga áfram.
Eyjólfur
Engin ummæli:
Skrifa ummæli