þriðjudagur, 23. desember 2008

Berta má ef.....

Hvað sagði ég? Núna er enginn sem skammast í Wolfang eða mér (Eyjólfi) En lesið þetta:

Viðskiptaráðherra skipar umboðsmann neytenda til fimm ára í senn. Skal hann hafa lokið háskólaprófi í lögfræði og málflutningsréttindi auk þekkingar og reynslu af málefnum neytenda.

2. mgr. 5. gr. Til að tryggja enn frekar sjálfstæði og hlutleysi talsmanns [umboðsmanns] neytenda telja Neytendasamtökin rétt að honum sé óheimilt að hafa með höndum önnur launuð störf, hvort sem er hjá opinberum aðilum eða einkaaðilum. Sambærilegt ákvæði er að finna í lögum nr. 83/1994 um umboðsmann barna. Neytendasamtökin leggja því til að 2. mgr. 5. gr. verði svohljóðandi:

Kjaranefnd ákveður laun og starfskjör umboðsmanns neytenda. Umboðsmanni neytenda er óheimilt að hafa með höndum önnur launuð störf eða takast á hendur verkefni sem eigi samrýmast starfi hans.

Þetta bannar hvorki hitt né þetta! Eða gerir það það?

Eyjólfur

Engin ummæli:

Skrifa ummæli